,,Ég er ekkert rosalega sáttur, FH voru sterkari til að byrja með en við létum markið þeirra ekki á okkur fá og styrktumst ef eitthvað var og áttum fullkomnlega skilið að halda jafnri stöðu í hálfleik."
,,Ég hef stórkostlega vörn fyrir framan mig og ég held að stykleiki okkar liðs felist í því að það eru ekki bara öftustu fjórir sem eru sterkir heldur verjast allir saman strax frá byrjun."
Aðspurður um hvort að 7 stig úr fyrstu 3 leikjunum væri ekki ágætis byrjun sagði hann: ,,Það er frábært og það sýnir hversu langt við erum komnir að menn voru ekkert rosalega sáttir eftir leik á útivelli gegn meisturunum."
Viðtalið við James má sjá hér fyrir ofan.























