,,Það er svekkjandi að ná ekki að vinna á heimavelli fyrst og fremst," sagði Freyr Bjarnason varnarmaður FH eftir 1-1 jafntefli gegn ÍBV í kvöld.
,,Við viljum vinna alla okkar leiki, sérstaklega heimaleikina. Úr þvi sem komið var í lokin er eitt stig allt í lagi."
,,Við byrjuðum mjög vel og mér fannst við spila mun betur í fyrri hálfleik, eftir að við skoruðum markið hefðum viðmátt bæta við einu jafnvel ef við hefðum verið heppnir."
,,Það var slæmt að fá mark á sig í lok fyrri hálfleiks, það má ekki gerast rétt fyrir hálfleik. Við gleymdum okkur þar og fengum á okkur skyndisókn. Þeir eru stórhættulegir þar."
Guðjón Árni Antoníusson fyrirliði FH fék rautt spjald í lokin.
,,Mér fannst það vera gult spjald, Guðjón sér aldrei hvað er að gerast, þetta gerist svo snöggt. Hann sparkar óvart í hann. Kiddi ætlaði að draga upp gula spjaldið en hætti svo við, ég veit ekki afhverju."






















