Guðmundur Steinn Hafsteinsson fyrirliði Víkinga frá Ólafsvík var hundsvekktur í kjölfar 1-3 taps fyrir Keflavík á Ólafsvíkurvelli í kvöld.
Þetta er alger drulla!
Þetta er alger drulla!
Hann hélt áfram;
Við spiluðum betur gegn Keflvíkingunum í dag mestan hluta leiksins, ég held að allir sem voru á vellinum hafi séð það. En við gerum stór mistök í vörn og sókn sem kosta okkur sigurinn.
Steini vill að menn fái meiri trú á sér.
Menn hafa ekki nógu mikla trú á sjálfum sér. Það sást fyrstu 65 mínúturnar að við erum fínir í fótbolta en við verðum að trúa því sjálfir.
Næsta viðfangsefni Víkings er að fara til Akureyrar og spila við Þór. Skilaboð fyrirliðans eru einföld:
Við verðum að fara í leikinn fyrir norðan með blóð á tönnunum!
Nánar er rætt við Guðmund Stein í myndbandinu sem fylgir fréttinni.






















