KR-ingar eru með fullt hús eftir þrjár umferðir en þeir áttu ekki í miklum vandræðum með Þór í kvöld og unnu 3-0 sigur.
Lestu um leikinn: KR 3 - 0 Þór
„Við þurftum að hafa fyrir þessum sigri. Við börðumst og hlupum og gerðum það sem við þurftum að gera. Þórsarar komu með baráttu í huga og vörðust vel," sagði Jónas Guðni Sævarsson, miðjumaður KR. Sigur Vesturbæinga var aldrei í hættu.
„Ég man ekki eftir því að þeir hafi átt einhver færi."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















