Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
banner
   fim 16. maí 2013 21:54
Brynjar Ingi Erluson
Þórður Þórðar: Strákarnir spiluðu vel í 82 mínútur
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA í Pepsi-deildinni, var svekktur eftir 4-1 tap liðsins gegn Breiðablik í kvöld.

,,Mjög skrítinn leikur, óhætt að segja það. Við hættum að spila sem lið þegar Blikar jafna leikinn, mark sem kemur upp úr smá klaufamistökum í vörninni og náum ekki að hreinsa almenninlega," sagði Þórður.

,,Við höldum ekki shape-inu, förum að hlaupa út úr stöðum og opna svæði og það má ekki gegn Blikunum. Ég var virkilega ánægður fram að því, þeir börðust og spiluðu fínan fótbolta og héldum þeim niðri, svo var ekkert að frétta hjá þeim eftir 82 mínútur en leikurinn er 90 mínútur."

,,Við lögðum hann upp þannig að við ætluðum að halda okkur niðri og loka svæðum og sækja hratt þegar við átti. Mér fannst strákarnir spila vel í 82 mínútur en eins og ég segi, leikurinn er 90 mínútur."

,,Við þurfum að gera það sem við gerðum fyrstu 82 mínúturnar af leiknum. Vera duglegir, þora að spila fótbolta og halda áfram, þetta er ekkert flókið. Þetta er engin stærðfræði,"
sagði Þórður.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni að ofan.
Slapp
banner
banner
banner