,,Þetta er orðin þreytt lumma. Þetta er enn einn 50/50 leikurinn sem getur farið hvernig sem er en hér stendur maður með eitt stig eftir þrjá leiki og það er óásættanlegt," sagði Tryggvi Guðmundsson eftir 1-0 tap Fylkis gegn Stjörnunni á heimavelli í kvöld.
Kennie Chopart skoraði eina markið undir lok leiksins.
Kennie Chopart skoraði eina markið undir lok leiksins.
,,Við fáum enn og aftur á okkur mark úr föstu leikatriði þar sem einbeitingarleysi verður okkur að falli."
Tryggvi segist ekki geta séð jákvæða punkta eftir leikinn. ,,Nei, það held ég ekki. Ég er bara fúll."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

























