,,Þetta var sætur sigur," sagði Veigar Páll Gunnarsson eftir 1-0 sigur Stjörnunnar á Fylki í kvöld.
,,Það sem gerir þetta kannski ennþá sætara er að við erum ekki með fyrstu 45 mínúturnar sem er sjokk fyrir okkur. Við snúum þessu við í hálfleik og komum dýrvitlausir inn í leikinn. Ef baráttan er í lagi þá kemur restin og það gerði það í dag."

Sigurmark Kennie Chopart kom eftir aukaspyrnu frá Veigari en hann segist vera að finna sig betur og betur í liði Stjörnunnar.
,,Ég held að ég eigi nóg inni. Mér er farið að líða betur og betur og ég held að ég eigi eftir að verða ennþá betri. Watch out," sagði Veigar léttur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.