Reykjavíkurborg, KSÍ og samstarfsaðilar verða með heljarinnar umgjörð í kringum leiki HM í Rússlandi í sumar svo fólk hér á landi geti tekið þátt í mikilli stemningu.
Sérstakt HM torg verður á Ingolfstorgi þar sem hægt verður að horfa á alla leiki en einnig verður aðstaða í Hljómskálagarðinum þegar Ísland er að spila.
Sérstakt HM torg verður á Ingolfstorgi þar sem hægt verður að horfa á alla leiki en einnig verður aðstaða í Hljómskálagarðinum þegar Ísland er að spila.
Veitingavagnar verða í garðinum en mögulegt er að þeir sem hafi áhuga á geti keypt sér bjór yfir leiknum.
„Við útilokum það alls ekki að veitingavagnar geti fengið vínveitingaleyfi, svona skammtímaleyfi. Auðvitað munum við samt leggja áherslu á góða umgengni. Þetta er fjölskylduskemmtun sem á að vera fyrir alla," segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í viðtali við Fótbolta.net.
Viðtalið við Dag má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir