Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 16. maí 2018 10:08
Elvar Geir Magnússon
Lichtsteiner á leið til Dortmund
Lichtsteiner fer til Þýskalands.
Lichtsteiner fer til Þýskalands.
Mynd: Getty Images
Stephan Lichtsteiner, varnarmaður Juventus, er á barmi þess að skrifa undir tveggja ára samning við Borussia Dortmund.

Bakvörðurinn hefur verið sjö sigursæl ár hjá Juventus, unnið ítalska meistaratitilinn öll árin og einnig lyft ítalska bikarnum tvívegis.

Lichtsteiner er landsliðsmaður Sviss en hann hafði áður gefið það út að hann myndi skipta um vinnuveitendur þegar samningur hans rennur út í júní.

Tuttosport á Ítalíu segir að hann sé nú að ganga frá lokaendum í samningi við Borussia Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner