Hefði viljað fá vítaspyrnu í stöðunni 0-1
Ejub Purisevic var yfirvegaður þrátt fyrir stóran skell á heimavelli gegn FH í kvöld.
"Mér fannst fyrri hálfleikurinn í jafnræði en það er mjög erfitt að lenda undir á móti svona liði. Mér fannst annað markið alveg jafn ódýrt og það fyrsta".
"Mér fannst fyrri hálfleikurinn í jafnræði en það er mjög erfitt að lenda undir á móti svona liði. Mér fannst annað markið alveg jafn ódýrt og það fyrsta".
Ejub gerði tilkall til vítaspyrnu þegar Guðmundur Magnússon féll í teignum eftir viðskipti við Guðmann Þórisson.
"Mér fannst þetta vera víti, hann missti gjörsamlega af boltanum þar sem að lagst var fyrir hann svo mér fannst alveg hægt að dæma víti á þetta".
Töluvert er um meiðsli í herbúðum Víkinga, fyrirliðinn Guðmundur Steinn sat á bekknum allan tímann og Eyþór Helgi er enn uppi í stúku. Stutt er á milli leikja hjá Víkingum en þjálfarinn var ekki viss um að einfalt verði að dreifa álaginu í leikmannahópnum og færa til í næsta leik sem er bikarleikur gegn Fram.
"Við höfum ekki mikinn hóp til að breyta svo að þetta verður ósköp svipað".
Í viðtalinu fer Ejub líka yfir það hvað þarf að breytast til að liðið skori mörk á ný og ræðir um þann hluta leiksins sem leið eftir þriðja mark FH og margir töldu að stutt væri í algert hrun heimamanna.






















