,,Ég er mjög ánægður með leik liðsins. Mér fannst við spila boltanum vel og eiga flottar sóknir," sagði Hólmbert Aron Friðjónsson framherji Fram eftir 4-1 sigur á Þór í Pepsi-deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Fram 4 - 1 Þór
Hólmbert skoraði þrennu í leiknum og fór á kostum í fremstu víglínu.
,,Mér finnst gaman að spila frammi. Ég er kannski meiri striker en kantmaður út af hæð minni. Það er mjög gaman frammi, sérstaklega þegar maður er að skora."
Fyrsta markið í dag skoraði Hólmbert með frábæru skoti í slána og inn en hann fékk boltann í hendina áður en hann skoraði.
,,Þetta fór í hendina, öxlina kannski. Þetta fór smá í hendina," sagði Hólmbert hlægjandi.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























