,,Þetta var eins og maður var búinn að hugsa þetta þegar maður var heima að kæla í gær. Að maður myndi koma inn á og skora," sagði Kjartan Henry Finnbogason eftir 4-2 sigur KR á ÍA í kvöld.
Kjartan Henry kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og skoraði annað mark liðsins en hann hjálpaði KR-ingum um leið að snúa taflinu sér í hag eftir að skagamenn höfðu komist yfir.
Kjartan Henry kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og skoraði annað mark liðsins en hann hjálpaði KR-ingum um leið að snúa taflinu sér í hag eftir að skagamenn höfðu komist yfir.
Kjartan Henry er að komast á skrið eftir að hafa verið frá keppni síðan í águst í fyrra vegna hnémeiðsla og hann vill byrja í næsta leik gegn Leikni í Borgunarbikarnum á miðvikudag.
,,Mig langar að spila alla leiki en ég verð að hugsa um líkamann. Ég þarf samt á því að halda að komast í leikform og spila leikina," sagði Kjartan.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















