Stjarnan 1 - 0 Keflavík
1-0 Ólafur Karl Finsen ('31)
1-0 Ólafur Karl Finsen ('31)
Stjarnan lagði Keflavík 1-0 í Garðabænum í lokaleik kvöldsins í Pepsi-deildinni en eina mark leiksins skoraði Ólafur Karl Finsen í fyrri hálfleik.
Ólafur fékk sendingu inn í teiginn frá Veigari Páli Gunnarssyni og lagði boltann snyrtilega í fjærhornið.
Arnór Ingvi Traustason komst næst því að jafna fyrir Keflavík í seinni hálfleik en Ingvar Jónsson stóð vaktina vel í marki Stjörnunnar.
Stjarnan hefur nú unnið þrjá leiki í röð og er með 16 stig í toppbaráttunni, þremur stigum á eftir toppliði KR. Keflavík er hins vegar í níunda sæti með fjögur stig.
Nánar verður fjallað um leikinn síðar í kvöld og viðtöl eru væntanleg.
Smelltu hér til að lesa textalýsinguna.




