Það eru aðeins rétt tæpar tvær klukkustundir í að íslenska landsliðið gangi inn á leikvanginn í Moskvu þar sem liðið mun spila við Argentínu á HM í fótbolta.
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Noregsmeistara Rosenborg, er ekki í Rússlandi, hann er í Noregi á leið í brúðkaup á sama tíma og leikurinn er spilaður.
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Noregsmeistara Rosenborg, er ekki í Rússlandi, hann er í Noregi á leið í brúðkaup á sama tíma og leikurinn er spilaður.
Á Twitter spyr Matthías:
„Er að fara í norskt brúðkaup á sama tíma og Argentína - Ísland er. Mun fólk fyrirgefa mér ef ég streymi leiknum í símanum í kirkjunni?"
KSÍ svarar Matthíasi, sem á 15 A-landsleiki. „Guð mun fyrirgefa þér," segir svari KSÍ.
Já Matti, Guð mun fyrirgefa þér.
God will forgive you, Matti ... #fyririsland
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 16, 2018
Athugasemdir