Þeir voru hressir strákarnir sem Fótbolti.net hitti fyrir utan Spartak Stadium í Moskvu eftir 1-1 jafntefli Íslands gegn Argentínu á HM í Rússlandi.
Þeir voru spurðir að því hvernig þeim leið þegar þeir sáu boltann í netinu hjá Alfreði Finnbogasyni sem jafnaði metin fyrir Ísland eftir að Sergio Aguero kom Argentínu yfir.
„Þetta var ótrúlegt. Ég leit frá í sekúndu svo sá ég boltann í netinu. Ég trylltist. Það var bara stemning þarna. Við vorum umkringdir Argentínumönnum, þetta var ótrúlegt."
Viðtalið við þessa hressa stuðningsmenn Íslands má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir