Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. júní 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Verður þetta byrjunarlið Englands í fyrsta leik?
Frá æfingu enska landsliðsins.
Frá æfingu enska landsliðsins.
Mynd: Getty Images
Sky Sports segist vita hvernig byrjunarlið Englands verður í fyrsta leik liðsins á HM í Rússlandi gegn Túnis mánudag.

Sky kveðst hafa heimildir fyrir því að Ashley Young, Jesse Lingard og Harry Maguire muni byrja leikinn.

Pickford í markinu - Þriggja manna vörn
Ef marka má heimildir Sky þá byrjar Jordan Henderson sem djúpur á miðjunni með Lingard og Dele Alli fyrir framan sig. Gareth Southgate, þjálfari Englands, mun stilla upp í þriggja manna vörn.

Kyle Walker byrjar í vörninni ásamt títtnefndum Maguire og John Stones. Kieran Trippier og Young verða vængbakverðir og Raheem Sterling og Harry Kane verða fremstu menn.

Jordan Pickford mun byrja í markinu fram yfir Jack Butland, en níu af þessum leikmönnum í byrjunarliði Sky Sports hafa aldrei spilað á Heimsmeistaramóti.

Marcus Rashford, sem hefur verið að glíma við meiðsli, mun ekki vera í byrjunarliði Englands.

Enland mætir Túnis eftir helgi, á mánudaginn, en auk Túnis er England í riðli með Belgíu og Panama.
Athugasemdir
banner
banner
banner