Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 16. júlí 2017 10:15
Mist Rúnarsdóttir
Arndís Snjólaug: Tvö pör af tvíburum í liðinu
Við kíkjum á Keflavík í dag
Við kíkjum á Keflavík í dag
Mynd: Jón Örvar Arason
Arndís Snjólaug segir okkur frá Keflavík í dag
Arndís Snjólaug segir okkur frá Keflavík í dag
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Úr leik Keflavíkur og Selfoss fyrr í sumar
Úr leik Keflavíkur og Selfoss fyrr í sumar
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Við höldum áfram að skoða stemmninguna hjá liðunum í 1. og 2. deild kvenna í gegnum liðinn "Hvað er að frétta".

Í dag er komið að því að kíkja á Keflavík en það er fyrirliðinn Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir sem svarar nokkrum spurningum um liðið sitt.

Keflavík heimsækir Sindra í dag en liðin mætast á Sindravelli kl.16:00. Keflavík er í 4. sæti deildarinnar eftir 9 umferðir og með sigri fyrir austan halda þær pressu á efstu liðin í æsispennandi 1. deild.

Keflavík:
Erkifjendur: Grindavík
Heimavöllur: Nettóvöllurinn
Fyrirliði: Arndís Snjólaug
Þjálfari: Gunnar (GMJ eins og hann er kallaður) og Haukur (beip)

Hvernig er stemningin hjá Keflavík?
Alltaf góð stemning í Keflavíkinni

Hvernig er liðið byggt upp?
Ungar heimastelpur, einn Húsvíkingur og tveir kanar

Ertu ánægð með spilamennsku þíns liðs í sumar?
Spilamennskan sem slík hefur verið fín en við höfum ekki verið að ná nægilega góðum úrslitum að okkar mati

Hvert er markmið sumarsins hjá ykkur?
Markmiðið er að gera betur en í fyrra

Lýstu liðinu í þremur orðum:
Ungar, fjörugar og metnaðarfullar

Nú eigið þið mikilvægan leik við Sindra framundan. Hvernig leggst sá leikur í ykkur?
Hann leggst vel í okkur, erum vanar að ferðast langt í leiki þannig við erum bara peppaðar. Svo skemmir ekki fyrir ef við komumst í Sindrafréttir

Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
Í liðinu eru tvö pör af tvíburum (Anita-Eva, Katla-Íris), ein sem er tvíburi (Sigurbjörg) og ein sem er þriburi (Ólöf)

Eitthvað að lokum:
Hvetjum alla til að koma á Nettóvöllinn og láta heyra vel í sér!
Athugasemdir
banner
banner
banner