Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 16. júlí 2017 15:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Átta létust þegar veggur hrundi á leikvangi í Senegal
Frá Demba Diop.
Frá Demba Diop.
Mynd: Twitter
Átta létust og að minnsta kosti 49 slösuðust þegar veggur hrundi á leikvangi í Senegal.

Atvikið átti sér stað á demba Diop leikvangnum í Dakar, höfuðborg Senegal.

Þar fór fram úrslitaleikur deildarbikarsins milli Stade de Mbour og Union Sportive Ouakam.

Slagsmál brutust út milli stuðningsmanna liðanna og lögreglan brást við með því að skjóta táragaskúlum á mannskapinn.

Það var ekki til að bæta ástandið því í óðagotinu hrundi veggurinn með þessum skelfilegu afleiðingum.
Athugasemdir
banner
banner
banner