Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 16. júlí 2017 15:13
Egill Sigfússon
Byrjunarlið KA og ÍBV: Steinþór Freyr snýr aftur í byrjunarliðið
Steinþór Freyr er í byrjunarliði KA í dag
Steinþór Freyr er í byrjunarliði KA í dag
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Nýliðar KA fá ÍBV í heimsókn klukkan 16:00. KA er fyrir leikinn í dag í 6.sæti með 12 stig en ÍBV er í 9.sæti með 11 stig.

KA menn gera tvær breytingar á sínu liði. Elfar Árni sest á bekkinn í fyrsta skipti í sumar og Steinþór Freyr Þorsteinsson byrjar í fyrsta sinn síðan í 1.umferðinni gegn Breiðablik. Hrannar Björn Steingrímsson kemur inn í liðið fyrir Bjarka Þór Viðarsson.

Frábærar fréttir fyrir KA ef Steinþór Freyr er loksins að verða heill af þessum meiðslum í læri sem hafa verið að hrjá hann í allt sumar. Sérstaklega af því KA er búið að vera frekar bitlausir fram á við í undanförnum umferðum eftir kröftuga byrjun.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson byrjar fyrir Eyjamenn í dag eftir að hafa komið inná og skorað jöfnunarmarkið gegn Breiðablik í síðustu umferð.

Mikkel Maigaard Jakobsen kemur einnig inn í lið Eyjamanna í dag og þeir Kaj Leo í Bartalsstovu og Atli Arnarson detta út.

Byrjunarlið KA
23. Srdjan Rajkovic (m)
3. Callum Williams
7. Almarr Ormarsson
8. Steinþór Freyr Þorsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson (f)
11. Ásgeir Sigurgeirsson
16. Davíð Rúnar Bjarnason
19. Darko Bulatovic
20. Aleksandar Trninic
22. Hrannar Björn Steingrímsson
28. Emil Lyng

Byrjunarlið ÍBV
21. Halldór Páll Geirsson (m)
3. Matt Garner
4. Hafsteinn Briem
5. Avni Pepa
6. Pablo Punyed
9. Mikkel Maigaard
11. Sindri Snær Magnússon (f)
12. Jónas Þór Næs
18. Alvaro Montejo
26. Felix Örn Friðriksson
34. Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu!
Athugasemdir
banner
banner
banner