Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 16. júlí 2017 19:05
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið Víkings R. og Vals: Patrick Pedersen byrjar
Patrick kemur beint inn í byrjunarlið Vals.
Patrick kemur beint inn í byrjunarlið Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Davíð Atla kemur inn í lið Víkings.
Davíð Atla kemur inn í lið Víkings.
Mynd: Raggi Óla
Víkingur R. og Valur mætast í Pepsi-deildinni klukkan 20:00 í kvöld. Valsmenn eru á toppi deildarinnar fyrir leikinn með 21 stig en Víkingur er í 6. sætinu með 15 stig.

Smelltu hér til að sjá textalýsingu

Patrick Pedersen fékk leikheimild með Val um helgina þegar félagaskiptaglugginn opnaði. Hann fer beint inn
í framlínu Vals en Kristinn Ingi Halldórsson byrjar á bekknum.

Einar Karl Ingvarsson tekur út leikbann hjá Val og Nicolas Bogild kemur inn í liðið í hans stað.

Vladimir Tufegdzic tekur út leikbann hjá Víkingi R. og þeir Viktor Bjarki Arnarsson og Ragnar Bragi Sveinson detta úr liðinu síðan í jafnteflinu gegn ÍA í síðustu viku. Erlingur Agnarsson, Arnþór Ingi Kristinsson og Davíð Örn Atlason koma inn í liðið.

Veigar Páll Gunnarsson er á bekknum en hann fékk leikheimild með Víkingi um helgina.

Byrjunarlið Víkings R.
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
5. Milos Ozegovic
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Alex Freyr Hilmarsson
11. Dofri Snorrason
19. Erlingur Agnarsson
20. Geoffrey Castillion
21. Arnþór Ingi Kristinsson
22. Alan Lowing
24. Davíð Örn Atlason

Byrjunarlið Vals
1. Anton Ari Einarsson (m)
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Nicolas Bögild
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
14. Arnar Sveinn Geirsson
16. Dion Acoff
19. Patrick Pedersen
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
Athugasemdir
banner
banner
banner