Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. júlí 2017 09:45
Arnar Daði Arnarsson
EM í Hollandi
Freyr búinn að ákveða byrjunarliðið gegn Frökkum
Freyr á fréttamannafundi í dag.
Freyr á fréttamannafundi í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er búinn að ákveða byrjunarliðið," sagði Freyr Alexandersson á fyrsta fréttamannafundi landsliðsins í Ermelo í Hollandi í dag.

Ísland mætir Frakklandi í fyrsta leik á þriðjudaginn.

„Ég hef verið með ákveðin plön síðustu daga og vikur en það var í gær sem ég tók endanlega ákvörðun," sagði Freyr sem segir leikmenn hópsins vera vel meðvitaða um sín hlutverk í hópnum og hann finnur ekki fyrir einhverju spennu á milli leikmanna.

„Það eru allir meðvitaðir um sín hlutverk. Þær vita nokkurnveginn liðið en það kemur í ljós á morgun. Ég finn ekki spennu sem myndast stundum við þetta," sagði Freyr sem tilkynnir hópnum byrjunarliðið eftir æfinguna á morgun í Tilburg sem er þá síðasta æfing fyrir leikinn gegn Frökkum sem fram fer í Tilburg.

Fréttamannafundinn má sjá í heild hér að neðan:

Athugasemdir
banner
banner
banner