Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. júlí 2017 17:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Fulham að kaupa framherja úr frönsku deildinni
Diego Rolan er á leið í Fulham
Diego Rolan er á leið í Fulham
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson er að fá nýjan liðsfélaga hjá liði sínu Fulham en félagið er að kaupa framherjann Diego Rolan frá Bordeaux á 5 milljónir punda.

Rolan vill frekar spila í ensku úrvalsdeildinni en Fulham er að reyna að sannfæra hann til þess að koma í Championship deildina.

Rolan er staddur í London þessa stundina og er hann að funda með forráðamönnum Fulham en enn á eftir að semja við leikmanninn.

Ekkert lið úr úrvalsdeildinni hafa boðið í Rolan en talið er að Newcastle hafi áhuga á leikmanninnum.

Rolan kemur frá Úrúgvæ og hefur hann leikið 23 leiki fyrir þjóð sína og skorað 4 mörk. Hann hefur skorað 37 mörk í yfir 100 leikjum fyrir Bordeaux.
Athugasemdir
banner
banner