Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 16. júlí 2017 09:29
Arnar Daði Arnarsson
EM í Hollandi
Harpa stal Fifa af syninum
Harpa Þorsteinsdóttir leiðir hér hópinn.
Harpa Þorsteinsdóttir leiðir hér hópinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeim leiðist ekki Stelpunum okkar á hótelinu í Ermelo þar sem þær dvelja á meðan EM í Hollandi stendur yfir.

Á Golden Tulip hótelinu eru þær með sér afþreyingar herbergi þar sem þær til að mynda horfðu á íslensku kvikmyndina "Ég man þig" í gærkvöldi.

„Sumir þurftu knús á meðan og eftir að myndin lauk. Síðan voru þjálfarnir í því að banka á rúður á meðan á myndin var í gangi," sögðu þær Hallbera Guðný Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir á fréttamannafundi sem haldinn var í Ermelo í morgun.

Fanndís opinberaði það síðan að Harpa Þorsteinsdóttir hafi stolið Fifa tölvuleik.

„Harpa stal Fifaleiknum af eldri syni sínum. Við eigum hinsvegar eftir að kíkja á leikina en ég er með einhverja bílaleiki," sagði Hallbera kímin.

Fréttamannafundinn má sjá í heild hér að neðan:

Athugasemdir
banner