Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 16. júlí 2017 09:51
Fótbolti.net
Ermelo, Hollandi
Myndir: Fanndís vann Frey í hjólakeppni
Freyr og Fanndís keppa.
Freyr og Fanndís keppa.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í Hollandi er hjólreiðafólk langefst í virðingarstiganum og það veit íslenski hópurinn og starfslið þess.

Freyr Alexandersson, Fanndís Friðriksdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir sátu fyrir svörum fjölmiðlafólks á fréttamannafundi við æfingasvæðið í morgun.

Þau komu hjólandi á fréttamannafundinn ásamt Óskari Erni Guðbrandssyni, fjölmiðlafulltrúa liðsins.

Eftir að fundi lauk fóru Freyr og Fanndís í spyrnukeppni á hjólunum en skemmst er frá því að segja að Fanndís fór með sigur af hólmi.

Hér má sjá skemmtilegar myndir sem Hafliði Breiðfjörð, ljósmyndari og ökumaður Fótbolta.net, tók.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner