Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 16. júlí 2017 15:30
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Liverpool ferðast til Hong Kong
Philippe Coutinho og félagar á flugvellinum.
Philippe Coutinho og félagar á flugvellinum.
Mynd: Getty Images
Liverpool ferðast til Hong Kong í æfingaferð en með í för er Mohamed Salah sem keyptur var frá Roma í sumar. Salah skoraði í sínum fyrsta leik í búningi Liverpool, 1-1 jafntefli gegn Wigan á föstudag.

Dominic Solanke er einnig með í för en Sadio Mane var skilinn eftir á Melwood æfingasvæðinu þar sem hann heldur áfram að vinna í hnémeiðslum sem hann hlaut á síðasta tímabili.

Mamadou Sakho fór heldur ekki með en framtíð hans er óljós eftir lánsdvölina hjá Crystal Palace á síðasta tímabili. Lucas Leiva er að klára félagaskipti til Lazio og Emre Can fékk lengra frí vegna Álfukeppninnar.

Liverpool mun mæta Crystal Palace á miðvikudaginn í Hong Kong en hér má sjá myndir frá ferðalagi liðsins.

Ferðahópur Liverpool:

Markverðir: Loris Karius, Simon Mignolet, Danny Ward

Varnarmenn: Nathaniel Clyne, Dejan Lovren, Joe Gomez Ragnar Klavan, Alberto Moreno, Joel Matip, Jon Flanagan, Trent Alexander-Arnold

Miðjumenn: Georginio Wijnaldum, James Milner, Philippe Coutinho, Jordan Henderson, Marko Grujic , Adam Lallana, Kevin Stewart, Ryan Kent

Sóknarmenn: Roberto Firmino, Mohamed Salah, Daniel Sturridge, Divock Origi, Dominic Solanke, Ben Woodburn
Athugasemdir
banner
banner