Framherjinn Clinton Njie, sem er 23 ára, hefur gengið í raðir Marseille frá Tottenham.
Þessi kamerúnski landsliðsmaður var hjá Marseille á lánssamningi á síðasta tímabili og skoraði þá fjögur mörk.
Þessi kamerúnski landsliðsmaður var hjá Marseille á lánssamningi á síðasta tímabili og skoraði þá fjögur mörk.
Njie kom til Spurs frá Lyon 2015 fyrir um 10 milljónir punda og lék 14 leiki fyrir félagið. Hann meiddist illa á hné í desember 2015.
Í yfirlýsingu óskar Tottenham leikmanninum alls hins besta í framtíðinni.
Athugasemdir