„Ég vil byrja fundinn á því að óska Sunnu til hamingju með sigurinn í nótt," sagði Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsiðsins á fréttamannafundi sem haldin var í Ermelo í Hollandi í morgun.
Sunna Rannveig Davíðsdóttir vann í nótt sinn þriðja bardaga í röð í blönduðum bardagalistum á Invicta FC 24 kvöldinu í Kansas. Sunna gekk inn í salinn í íslenska landsliðsbúningnum merktum númer sex.
Búninginn fékk hún í gjöf frá landsliðinu.
„Þetta var meiri háttar bardagi sem enginn okkar sá í beinni en við kíktum á þetta í morgun. Vel gert Sunna og til hamingju. Allar stelpurnar í hópnum eru sáttar með okkar kona. Hún fær opnunarkveðjuna frá okkur," sagði Freyr.
Stelpurnar okkar fóru á æfingu hjá Mjölni í þar síðustu viku þar sem Sunna Rannveig tók á móti stelpunum og fékk stelpurnar til að slást við hvor aðra.
Athugasemdir