Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 16. ágúst 2017 20:56
Einar Kristinn Kárason
Kristján Guðmunds: Við erum komnir í störukeppni við falldrauginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við urðum að vinna hann (leikinn) en gerðum það ekki. Við vorum ekki nógu ákveðnir í okkar leik frá upphafi en náðum svo sem að komast aðeins inn í fyrri hálfleikinn og aðeins inn í seinni en náðum ekki að nýta þessi hálffæri eða færi sem við fengum og það skiptir gríðarlegu máli" sagði Kristján Guðmundsson þjálfari ÍBV eftir tap sinna manna gegn Víkingi Ólafsvík.

„Þetta er ekki fyrsta skipti sem við lendum í því að andstæðingur er rekinn útaf og við erum einum fleiri og fáum á okkur mark. Það er bara ekki gott."

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  1 Víkingur Ó.

Víkingar dældu mikið af fyrirgjöfum inn í teig Eyjamanna en það var ekkert sem Kristján hafði áhyggjur af. „Við höfðum ekkert áhyggjur af þessari spilamennsku en þarna sofnum við á verðinum einum fleiri og þetta er svo dæmigert fyrir knattspyrnuna að detta út á þessu augnabliki og boltinn fer bara þarna á milli varnarmanna og hann nær að skalla hann."

Spurður hvort ÍBV verði í Pepsi deildinni 2018 svaraði Kristján: „Já, enn sem komið er en við erum komnir í störukeppni við falldrauginn og við verðum að vinna þá keppni."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner