Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 16. september 2014 22:30
Alexander Freyr Tamimi
Hazard að gera nýjan samning við Chelsea
Hazard ætlar að krota undir nýjan samning.
Hazard ætlar að krota undir nýjan samning.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, sóknarmaður Chelsea, gæti skrifað undir nýjan samning við félagið innan mánaðar samkvæmt knattspyrnustjóranum Jose Mourinho.

Belgíski landsliðsmaðurinn kom til Chelsea frá Lille árið 2012 og á enn eftir þrjú ár af samningi sínum.

Chelsea vill þó endilega framlengja samning þessa 23 ára gamla sóknarmanns, sem hefur stimplað sig inn sem einn af bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar.

,,Þetta er bara spurning um tíma, kannski einn mánuð í viðbót, en við munum enda með nýjan samning," sagði Mourinho.

,,Hann vill vera áfram og skuldbinda sig til fjölmargra ára. Hazard getur orðið jafnvel betri, og við erum stoltir af því að hann telji Chelsea vera besta umhverfið til að ná enn hærra."

Athugasemdir
banner
banner
banner