Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. september 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Januzaj vonar að þrennan heilli van Gaal
Adnan Januzaj.
Adnan Januzaj.
Mynd: Getty Images
Adnan Januzaj vonast til að hafa heillað Louis van Gaal stjóra liðsins í 4-0 sigri með varaliðinu gegn Sunderland í gær.

Januzaj skoraði þrennu í leiknum en Van Gaal var á meðal áhorfenda.

,,Ég spilaði marga leiki á síðasta tímabili og ég er að reyna að heilla stjórann aftur til að fá að spila leiki á þessu tímabili," sagði Januzaj en hann kom inn á sem varamaður gegn QPR í fyrradag.

,,Jafnvel þó að það sé í varaliðinu þá vil ég sýna mig og bæta mig. Ég skoraði þrennu og ég vann líka vel varnarlega. Það er eitthvað sem þú þarft að gera í aðalliðinu."
Athugasemdir
banner
banner