þri 16. september 2014 21:16
Alexander Freyr Tamimi
Jurgen Klopp: Svona leikir eru það besta í heimi
Klopp og félagar fóru létt með Arsenal.
Klopp og félagar fóru létt með Arsenal.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund, var skiljanlega ánægður með sína menn eftir 2-0 sigur gegn Arsenal í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Þeir Ciro Immobile og Pierre-Emerick Aubameyang tryggðu Dortmund fyllilega verðskuldaðan sigur á Signal Iduna Park og gat Klopp ekki annað en hrósað sínum mönnum.

,,Ég er mjög ánægður. Þrír leikmenn duttu út vegna meiðsla en við tókum nokkrar ákvarðanir og ég verð að hrósa liðinu fyrir frábæra frammistöðu. Þetta var virkilega sterkt," sagði Klopp.

,,Við vorum hugrakkir, við vorum hraðir og það var allt sem til þurfti í þennan leik. Ég naut leiksins frá fyrstu sekúndu til síðustu og það besta í heimi er að sjá svona leiki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner