Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 16. september 2017 17:48
Hafliði Breiðfjörð
Stebbi Gísla: Síðustu tveir leikir vægast sagt hræðilegir
Stefán Gíslason.
Stefán Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Síðustu tveir leikir hafa verið vægast sagt hræðilegir," sagði Stefán Gíslaon þjálfari Hauka eftir 0-6 tap heima gegn Fylki í dag en liðið tapaði líka 6-0 um síðustu helgi, þá gegn Leikni Fáskrúðsfirði úti.

Lestu um leikinn: Haukar 0 -  6 Fylkir

„Fyrir leikinn í dag fannst mér stemmningin og glampinn í augunum á strákunum réttur og að menn vildu laga og breyta því sem gerðist um síðustu helgi. Leikurinn byrjaði jafnt og var jafn þannig séð en svo koma tvær hornspyrnur og við fáum tvö mörk á okkur úr þeim og þá missum við dampinn eða trúna eða ég veit ekki hvað það er."

Haukar fengu ekki dæmda á sig aukaspyrnu í leiknum fyrr en á 65. mínútu leiksins. Segir það ekki eittvhað um hugarfar?

„Að sjálfsögðu, það er alveg hægt að segja það þannig. Mér fannst við ekki vera undir fram að fyrsta markinu, við vorum að fara í skallaboltana og berjast um annan boltann þó það hafi ekki verið aukaspyrna. Ég var ekki búinn að taka eftir því. Hvað gerist eftir fyrst og annað markið er svekkjandi."

Nánar er rætt við Stefán í sjónvarpinu hér að ofan. Hann er þar spurður út í orðróm sem heyrðist á Ásvöllum í dag þess efnis að hann ætli sér að hætta með liðið eftir tímabilið.

„Það er ekkert í kortunum. Ég ætla bara að klára þetta tímabil og svo tökum við stöðuna. Þetta er búið að vera frábært sumar og ekkert út á það að segja."
Athugasemdir
banner
banner