Leicester 1 - 1 West Brom
0-1 Nacer Chadli ('63)
1-1 Riyad Mahrez ('80)
0-1 Nacer Chadli ('63)
1-1 Riyad Mahrez ('80)
Staðan var markalaus í hálfleik er Leicester City fékk West Bromwich Albion í heimsókn í enska boltanum í kvöld.
Heimamenn höfðu yfirhöndina í afar bragðdaufum leik en það voru gestirnir sem komust yfir með gullfallegu aukaspyrnumarki frá Nacer Chadli.
Riyad Mahrez jafnaði með sínu fyrsta marki á tímabilinu eftir að Islam Slimani lagði knöttinn upp fyrir samlanda sinn með brjóstkassanum.
West Brom er um miðja deild með 10 stig en Leicester er áfram í fallsæti með 6 stig eftir 8 umferðir.
Athugasemdir