Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. október 2017 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Verona vann botnslaginn - Benevento án stiga
Romulo gerði eina mark leiksins.
Romulo gerði eina mark leiksins.
Mynd: Getty Images
Verona 1 - 0 Benevento
1-0 Romulo ('74)
Rautt spjald: L. Antei ('37, Benevento)

Romulo gerði eina mark leiksins er Verona vann botnslaginn gegn nýliðum Benevento í síðasta leik 8. umferðar ítalska boltans.

Gestirnir frá Benevento misstu miðvörðinn Luca Antei af velli á 37. mínútu eftir tæklingu, en dómurinn þótti afar harður.

Pietro Iemmello, sóknarmaður Benevento, fékk tækifæri til að jafna leikinn eftir að Romulo hafði komið heimamönnum yfir en misnotaði færið.

Þetta var fyrsti sigur Verona á tímabilinu og er liðið einu stigi frá fallsæti. Benevento er sem fyrr stigalaust á botninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner