banner
   mán 16. október 2017 14:00
Elvar Geir Magnússon
Meiðslalisti Chelsea lengist
Victor Moses.
Victor Moses.
Mynd: Getty Images
Meiðslalisti Chelsea lengist en Victor Moses er meiddur aftan í læri og verður frá næstu fjórar vikurnar. Hann er þriðji leikmaður Chelsea á tveimur vikum sem meiðist aftan í læri.

Hann fór meiddur af velli í 2-1 tapi gegn Crystal Palace en sóknarmaðurinn Alvaro Morata og miðjumaðurinn N'Golo Kante hafa hlotið svipuð meiðsli í síðustu leikjum.

Morata vonast til þess að geta spilað gegn Roma í Meistaradeildinni á miðvikudaginn en Antonio Conte hefur þegar útilokað Kante og Moses frá leiknum. Kante verður frá út októbermánuð.

„Það er erfitt að vera án þriggja til fjögurra leikmanna. Það er stórt vandamál fyrir okkur. Þetta verður erfitt tímabil og allir verða að leggja sig 150% fram," segir Conte.

Chelsea er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er þegar níu stigum á eftir toppliði Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner