Leicester náði aðeins jafntefli gegn West Brom í eina leik kvöldsins í enska boltanum.
Nacer Chadli kom gestunum yfir gegn gangi leiksins með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu en Riyad Mahrez náði að jafna á 80. mínútu.
Nacer Chadli kom gestunum yfir gegn gangi leiksins með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu en Riyad Mahrez náði að jafna á 80. mínútu.
Craig Shakespeare, stjóri Leicester, hefði viljað sigur úr leiknum enda eru Englandsmeistararnir fyrrverandi í fallsæti, með sex stig eftir átta umferðir.
„Það getur verið mjög erfitt andlega að lenda undir þrátt fyrir að stjórna leiknum eins og við gerðum í dag," sagði Shakespeare.
„Ég er stoltur af karakternum sem strákarnir sýndu, við áttum jöfnunarmarkið skilið og erum svekktir að hafa ekki unnið."
Athugasemdir