Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 16. október 2017 11:41
Elvar Geir Magnússon
Stjarnan mætir Slavia Prag í Meistaradeild kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Stjörnunnar mun leika gegn Slavia Prag í 16-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna en dregið var rétt í þessu. Leikið er heima og að heiman.

Stjörnukonur geta verið sáttar við þennan drátt en tékkneska liðið er eitt af þeim lægst skrifuðu úr efri styrkleikaflokki í drættinum.

Það verður Íslendingaslagur í 16-liða úrslitum en Sigrún Ella Einarsdóttir og stöllur hennar í Fiorentina mæta Wolfsburg sem Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með.

Gló­dís Perla Viggós­dótt­ir og Andrea Thoris­son leika með Rosengard sem mætir Chelsea frá Englandi.

Drátturinn í heild:
Sparta Prag - Linköping
Gintra - Barcelona
Chelsea - Rosengard
Lilleström - Manchester City
Brescia - Montpellier
Blik-Kazygurt - Lyon
Fiorentina - Wolfsburg
Stjarnan - Slavia Prag

Fyrri leikirnir verða 8.-9. nóvember og þeir síðari viku seinna.


Athugasemdir
banner
banner
banner