,,Þetta var ekki nógu gott hjá okkur og það er hræðileg tilfinning að tapa þessum leik," sagði Hannes Þór Halldórsson markvörður íslenska landsliðsins eftir 2-1 tapið gegn Tékkum í kvöld.
,,Við fáum á okkur tvö hræðilega slysaleg mörk og fyrra markið kom á versta mögulega tíma. Það er hrikalegt að tapa leiknum á þessum tveimur mörkum."
,,Við fáum á okkur tvö hræðilega slysaleg mörk og fyrra markið kom á versta mögulega tíma. Það er hrikalegt að tapa leiknum á þessum tveimur mörkum."
Lestu um leikinn: Tékkland 2 - 1 Ísland
Sigurmark Tékka var sjálfsmark hjá Hannesi en það kom eftir klukkutíma leik.
,,Hann er kominn í þröjnga stöðu og ætlar að gefa inn í teiginn. Ég er að bregðast við því með því að elta boltann. Hann breytir skyndilega um stöðu þegar hann fer í Jón Daða sem táar hann í hornið. Ég reyni að skófla honum út og það tekst ekki."
,,Ég var kominn úr jafnvægi því að ég er að bregðast við fyrirgjöfinni. Það fór sem fór. Þetta er það sem markverðir þurfa að díla við. Hlutir gerast hratt og skyndilega og það heppnast ekki alltaf að bregðast við því."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir