Víðir Reynisson er sérstakur öryggisfulltrúi KSÍ á leiknum hér í Plzen þar sem Tékkland og Ísland eigast við.
„Mitt hlutverk er að tryggja það að allir geti komist á völlinn og skemmt sér vel," sagði Víðir við Fótbolta.net í dag.
„Það er svakalega flottur hópur hérna. Það er greinilegt að það eru allir mættir hingað með eitt markmið, að styðja liðið til sigurs."
„Það er íslensk þjóðhátíð í gangi," sagði Víðir en viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir