Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, var hundfúll eftir 2-1 tap Íslands gegn Tékklandi í undankeppni EM 2016 í kvöld.
Ragnar kom Íslandi í 1-0 með sínu fyrsta landsliðsmarki en honum gæti ekki verið meira sama þó hann hafi skorað fyrst Ísland vann ekki.
Ragnar kom Íslandi í 1-0 með sínu fyrsta landsliðsmarki en honum gæti ekki verið meira sama þó hann hafi skorað fyrst Ísland vann ekki.
Lestu um leikinn: Tékkland 2 - 1 Ísland
,,Tilfinningarnar eru ekkert blendnar eiginlega. Þetta mark skiptir engu máli núna þegar við erum búnir að tapa. Mér er alveg sama hvort ég skora eða ekki, þetta snýst um að vinna leikina. Þannig ég er eiginlega bara fúll yfir þessu," sagði Ragnar við Fótbolta.net.
,,Við vorum tilbúnir í þennan leik, það eru engar afsakanir. Þeir voru bara drullugóðir. Þeir pressuðu okkur hátt og við náðum ekki að spila okkur út úr pressunni og vorum að spila löngum boltum. Þeir voru betri."
,,Þessi mörk voru óþolandi. Í fyrsta skiptið var þetta ekki aukaspyrna. Það eru tíu sekúndur eftir og við erum ekki á tánum til að taka seinni boltann. Hitt markið er bara fyndið, þetta er bara skrítnasta mark sem ég hef séð. Þetta var bara óheppni."
Athugasemdir