Twitter notandinn The Chelsea Daily er með næstum því 11 þúsund fylgjendur og sérhæfir sig í því að koma með áreiðanlegar, að eigin sögn, fréttir um félagið.
Notandinn birti færslu þess efnis að Michy Batshuayi myndi bráðum verða fyrsti opinberlega samkynhneigði atvinnumaðurinn í Úrvalsdeildinni og tók fram að hann væri þegar búinn að opna sig við nokkra af liðsfélögunum sínum.

Batshuayi birti Twitter færslu vegna málsins í dag og sagði fregnirnar vera lygasögu.
„Meira að segja mamma þín veit að þetta er lygi," sagði Batshuayi.
😂😂😂😂 bro even your mother knows thats false 🙈 https://t.co/Vs0gEl711b
— Michy Batshuayi (@mbatshuayi) November 16, 2017
Athugasemdir