Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 16. nóvember 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Wenger: Meiðsli Cazorla þau verstu sem ég hef séð
Santi Cazorla.
Santi Cazorla.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að meiðsli Santi Cazorla séu þau verstu sem hann hefur séð á ferlinum.

Cazorla hefur verið frá keppni í meira en ár en um tíma var óttast að hann myndi missa fótinn vegna meiðslana.

„Þetta eru verstu meiðsli sem ég hef séð. Þetta byrjaði sem lítill verkur í hásin en varð svo verra og verra," sagði Wenger.

„Ég veit hversu mikið Santi Cazorla elskar að spila fótbolta á hverjum degi og ég er mjög leiður yfir því sem kom fyrir hann. Þetta er ótrúlegt."

Sjá einnig:
Mynd: Húðflúr var fært af hendi Cazorla yfir á ökklann
Wenger: Meiðsli Cazorla þau verstu sem ég hef séð
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner