fim 16. nóvember 2017 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Willian skilur ekki hvers vegna Chelsea lánaði Loftus-Cheek
Mynd: Getty Images
Ruben Loftus-Cheek hefur staðið sig vel með Crystal Palace á tímabilinu en hann er þar á lánssamning frá Chelsea.

Loftus-Cheek er 21 árs miðjumaður og spilaði sinn fyrsta A-landsleik á föstudaginn. Sá leikur var gegn heimsmeisturunum frá Þýskalandi og lauk honum með markalausu jafntefli, þar sem Loftus-Cheek var maður leiksins.

Miðjumaðurinn ungi var svo í byrjunarliðinu gegn Brasilíu á þriðjudaginn en fór meiddur af velli eftir 35 mínútur. Willian, kantmaður Chelsea, var í liði Brasilíu og segist ekki skilja hvers vegnafélagið hafi lánað Loftus-Cheek frá sér.

„Ég skil ekki hvers vegna hann er hjá Crystal Palace, ég bara skil það ekki. Hann verður að koma aftur, við þurfum hann," sagði Willian.

„Hann er mjög góður leikmaður, hann er sterkur og gæðamikill. Hann á framtíðina fyrir sér."
Athugasemdir
banner
banner