Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. desember 2014 21:37
Brynjar Ingi Erluson
HM-félagsliða: Real Madrid flaug í úrslitin
Isco var góður í kvöld
Isco var góður í kvöld
Mynd: Getty Images
Cruz Azul 0 - 4 Real Madrid
0-1 Sergio Ramos ('15 )
0-2 Karim Benzema ('36 )
0-3 Gareth Bale ('50 )
0-4 Isco ('72 )

Spænska stórliðið Real Madrid fór létt með Cruz Azul frá Mexíkó er liðin mættust í undanúrslitum HM-félagsliða í kvöld.

Sergio Ramos kom liðinu yfir eftir einungis 15. mínútur með skalla áður en Karim Benzema bætti við öðru marki á 36. mínútu af stuttu færi.

Gareth Bale skoraði þriðja marki með skalla eftir góða fyrirgjöf frá vinstri og svo fullkomnaði Isco sigurinn með fjórða markinu en Cristiano Ronaldo lék þá á varnamann áður en hann lagði boltann á Isco sem prjónaði sig í gegnum vörnina og skoraði.

Lokatölur 0-4 fyrir Real Madrid sem er komið í úrslitaleikinn en liðið mætir annaðhvort San Lorenzo frá Argentínu eða Auckland City frá Ástralíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner