banner
   þri 16. desember 2014 22:34
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Fabregas er að spila mjög vel
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, var ánægður með 1-3 sigur liðsins á Derby County í enska deildabikarnum í kvöld en hann hrósaði Cesc Fabregas í hástert.

Eden Hazard kom Chelsea yfir með laglegu marki áður en Filipe Luis bætti við öðru marki úr aukaspyrnu. Andre Schurrle gerði þá þriðja mark liðsins rétt eftir að Craig Bryson hafði minnkaði muninn.

,,Derby er í ensku fyrstu deildinni en þetta er ekki týpískt fyrstu deildar lið. Derby er með meiri gæði en flest lið þar og liðið spilar vel og er með frábæran stuðning," sagði Mourinho.

,,Fabregas er að spila mjög vel í augnabliinu. Það sem mér líkar best í fari hans er hvað hann er mikill atvinnumaður. Hann er heimsmeistari og kemur hingað að spila í deildabikarnum og spilar samt svona. Þetta er karakter sem mér líkar vel við," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner