Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. desember 2014 22:07
Brynjar Ingi Erluson
Ochoa byrjaði að elta Liverpool á Twitter eftir United leikinn
Guillermo Ochoa
Guillermo Ochoa
Mynd: Twitter
Guillermo Ochoa, markvörður Malaga á Spáni, byrjaði að elta Liverpool á samskiptavef Twitter eftir 3-0 tap liðsins gegn Manchester United um helgina.

Ochoa var orðaður við Liverpool í sumar eftir magnaða frammistöðu með mexíkóska landsliðinu á HM.

Hann samdi þó við Malaga á endanum en hann gæti þó farið til Liverpool eftir allt saman enda er markavarðarstaða félagsins helsta umræðuefnið þessa stundina.

Simon Mignolet var bekkjaður um helgina en hann hefur verið afar slakur á tímabilinu og þá var Brad Jones, varamarkvörður settur í markið.

Ochoa er byrjaður að elta Liverpool á Twitter en það vekur athygli að þetta er eina enska liðið sem hann eltir á samskiptamiðlinum.
Athugasemdir
banner
banner