Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 16. desember 2014 20:26
Brynjar Ingi Erluson
Taarabt um Balotelli: Hann er að sóa hæfileikum sínum
Mynd: Getty Images
Adel Taarabt, leikmaður QPR á Englandi, hefur tjáð sig um Mario Balotelli, framherja Liverpool en hann lék með honum hjá AC Milan á Ítalíu.

Taarabt hefur lítið sem ekkert spilað með QPR á þessari leiktíð en hann á einungis tvo leiki í deild og einn leik í bikar með liðinu.

Hann var á síðustu leiktíð á láni hjá Milan frá janúar og út leiktíðina en þar lék hann með Mario Balotelli sem leikur í dag hjá Liverpool.

Lítið gengur hjá Balotelli og Liverpool þessa stundina en ítalski framherjinn hefur einungis gert tvö mörk fyrir félagið en á enn eftir að skora í deildinni.

,,Allir segja að hann sé frábær leikmaður en ég spilaði með honum og get sagt ykkur að hann er góður en ekki í heimsklassa," sagði Taarabt.

,,Hann er bara venjulegur leikmaður, hann er ekkert undur. Hann talar mikið og horfir stórt á sig en hann spilar ekki fyrir liðið. Hann hefur fengið svo mörg tækifæri, hjá City og Milan en hann hefur sóað þeim," sagði Taarabt að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner