Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. desember 2014 21:14
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bayern með góðan sigur á Freiburg
Arjen Robben
Arjen Robben
Mynd: Getty Images
Fjórum leikjum var að ljúka í þýska boltanum í kvöld en Bayern München sigraði Freiburg með tveimur mörkum gegn engu.

Bayern sigraði Freiburg með tveimur mörkum gegn engu. Yfirburðir Bayern voru ótrúlegir og í raun furðulegt að liðið hafi ekki skorað fleiri mörk en það var Arjen Robben sem kom með fyrsta markið undir lok fyrri hálfleiks.

Hann stangaði þá knöttinn í netið áður en Thomas Müller skoraði síðara markið í byrjun síðari hálfleiks. Müller skoraði þá eftir að markvörður Freiburg hafði varið frá Robert Lewandowski.

Úrslit og markaskorarar:

Bayern 2 - 0 Freiburg
1-0 Arjen Robben ('41 )
2-0 Thomas Muller ('48 )


Hannover 2 - 0 Augsburg
1-0 Salif Sane ('20 )
2-0 Joselu ('55 , víti)


Hamburger 0 - 1 Stuttgart
0-1 Florian Klein ('42 )


Rautt spjald:Georg Niedermeier, Stuttgart ('53)
Cologne 0 - 0 Mainz
Athugasemdir
banner
banner