Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 16. desember 2017 18:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Real Madrid er heimsmeistari
Mynd: Getty Images
Real Madrid 1 - 0 Gremio
1-0 Cristiano Ronaldo ('53)

Þeir gerðu sér erfitt fyrir en Real Madrid er heimsmeistari félagsliða annað árið í röð. Þeir hvítklæddu frá Madríd eru fyrsta liðið í sögunni sem vinnur heimsmeistarakeppnina tvö ár í röð.

Real mætti Gremio frá Brasilíu í úrslitaleiknum en fyrr í dag tryggði Pachuca frá Mexíkó sér bronsið eftir sigur á Al Jazira.

Það var aðeins eitt mark skorað og það gerði nýkjörinn besti leikmaður heims, Cristiano Ronaldo, úr aukaspyrnu á 53. mínútu.

Lokatölur 1-0 fyrir Real Madrid sem fer heim til Spánar með titil í veganesti, ekki slæmt það!



Athugasemdir
banner
banner
banner