Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 16. desember 2017 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hannes klippti stiklu fyrir Víti í Vestmannaeyjum
Myndin var tekin upp í sumar og byggir á samnefndri bók Gunnars Helgasonar.
Myndin var tekin upp í sumar og byggir á samnefndri bók Gunnars Helgasonar.
Mynd: Elma Karen
Kvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum, sem byggir á samnefndri bók eftir Gunnar Helgason verður frumsýnd 9. mars næstkomandi í Sambíóunum.

Sagafilm sem framleiðir kvikmyndina, fékk Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörð til liðs við sig við gerð nýrrar kynningarstiklu sem gerð var fyrir myndina.

Sagan er þroska saga Jóns sem fer á sitt fyrsta knattspyrnumót í Vestmannaeyjum. Þar þarf Jón að takast á við sjálfan sig og aðra, bæði innan vallar sem utan.

Jóhann Ævar Grímsson, Otto Geir Borg og Gunnar Helgason skrifa handrit kvikmyndarinnar og leikstjórn er í höndum af Braga Þórs Hinrikssonar.

Samhliða framleiðslu kvikmyndarinnar verða þróaðir og framleiddir sex sjónvarpsþættir sem einnig eru byggðir á bókinni og hefur RÚV tryggt sér sýningarréttinn á þeim.

Hannes Þór, sem er aðalmarkvörður íslenska landsliðsins, var fastráðinn leikstjóri í fullu starfi hjá Sagafilm árin 2012 og 2013, áður en hann hóf feril sem atvinnumaður í fótbolta.

Stiklan er hér að neðan.

Víti í Vestmannaeyjum - stikla from Sagafilm Productions on Vimeo.


Athugasemdir
banner